Grænmetispylsur

vegetarian / vegan

BulsurBulsur

Bulsur Svavar og Berglind Bulsuréttur Bulsumeistarinn Bulsur að steikjast á pönnu

Bulsur eru íslenskar grænmetispylsur. Þær eru búnar til úr íslensku bankabyggi, baunum, mjöli og fræjum og án allra aukaefna. Þær innihalda engar dýraafurðir. Hráefnin eru valin af kostgæfni og Bulsur innihalda lífræn innihaldsefni öðrum fremur og innlend hráefni þegar því verður við komið. Þær eru meðal annars kryddaðar með ferskum hvítlauk og ferskum chilipipar.

Þú grillar Bulsur eða steikir þær á pönnu og berð fram með því meðlæti sem þér dettur í hug.

Bulsur fást meðal annars í Frú Laugu, Melabúðinni, Krónunni, Nettó, Kjörbúðunum, Iceland, Fjarðarkaupum, Hagkaupum,

Eftirtaldir veitingastaðir bjóða jafnframt upp á Bulsur: Skál á Hlemmi Mathöll, Havarí á Karlsstöðum, Hlemmur Square, Geysir Bistro, Bjórgarðurinn Höfðatorgi.

 

Nýjustu fréttir:

Heitar uppskriftir: